bakgr.jpg

         Ármúli 38 .
            Gengið inn frá Selmúla.

Námskeið  á vorönn 2024
Fyllið út umsókn til hægri á síðunni og sendið eða

hafið samband á tölvupósti pianoskoli@gmail.com

eða í  6916980 (einnig sms)

Spring semester
Fill out the application ' umsókn ' to your right or
Send e-mail to pianoskoli@gmail.com
tel. 6916980 ( also sms )

Námskeið og einkatimar.
Hægt er að skrá sig á námskeiðin hvenær sem er.
Kennum byrjendum og lengra komnum. 
Píanóleikur - Hljómborðsnámskeið -  Tímar fyrir börn.

Hljómborðstímar 2-6 saman

Einkatímar ef laust. Hafið samband við skrifstofu.

 Frístundastyrkur barna 6-18 ára 
 2024 er kr. 75.000 í Reykjavík

Notast er við sportabler.com til þess að nýta styrkinn

Píanóskóli Þorteins Gauta var stofnaður árið 2002. Í fyrstu var hann á Grensásvegi 5 í litlu húsnæði en árið 2006 flutti hann í Ármúla 38 þar sem eru 4 rúmgóðar kennslustofur með nokkrum hljómborðum hver auk þess að hafa venjuleg piano.Í hljómborðsstofum er stundum notast við heyrnartól til þessa nemendur trufli ekki hvorn annan þegar 2-6 nemendur eru saman í tíma  en einnig er kennt í einkatímum þar. Hæðin er alls tæplega 200 fm hæð. Þar af  er salur sem rúmar um 80 manns í sæti. Þar er nokkuð stór flygill sem er notaður við kennslu og einnig til tónleikahalds innan skólans.Kennarar skólans hafa verið mismunandi margir í gegnum tíðina . Allt frá þremur til sjö manns. Oftast eru haldnir stærri tónleikar utan skólan tvisvar á ári.Jólatónleikar og vortónleikar auk smærri tónleika innan skólans.Píanóskóli Þorsteins Gauta kennir eftir námsskrá Menntamálaráðuneytisins.Einnig er kennt eftir eyranu og reynt er að hafa námið einstaklingsmiðað og eins skemmtilegt og hægt er.


Fréttir

pianoskolinn@pianoskolinn.is
pianoskoli@gmail.com
www.pianoskolinn.is

Ármúla 38, 2. hæð 108 Reykjavík

pósthólf 8540

Sími

(+354) 691 6980